Var að koma úr öðru prófinu mínu af tveimur, og
gekk bara glimrandi vel held ég! Næsta próf er ekki fyrr en á
þriðjudaginn í næstu viku svo þetta er allt saman voðalega
ljúft!
hvað rugl er samt þetta:
1 eining - 6.200 kr.
2 einingar - 12. 400 kr.
3 einingar - 18.600 kr.
4 einingar - 24.800 kr.
5 einingar - 31.000 kr.
6 einingar - 37.200 kr.
7 einingar - 43100 kr.
8 einingar - 49.000 kr.
9 einingar - 54.900 kr.
10 einingar - 60.800 kr.
11 einingar - 66.700 kr.
12 einingar - 72.600 kr.
13 einingar - 78.300 kr.
14 einingar - 84.000 kr.
15 einingar - 89.700 kr.
16 einingar - 95.400 kr.
17 einingar - 101.100 kr.
18 einingar - 106.800 kr.
Þetta er verðskráin yfir sumaráfanga í FB... þetta er reyndar
ódýrara í FÁ, en ég bara varð að koma þessu frá mér, svo hneyksluð
er ég! semsagt ef ég ætla að taka 9 einingar í sumar til að létta
mér aðeins næsta ár til að útskrifast kostar það ekki nema 55 þús
kjeeell... ekki málið vinur
Ég og Kolla vorum á fullu að læra undir próf á mánudaginn og
ákváðum aaðeins að lyfta okkur upp frá bókunum og kíktum á krúsið
með Lalls og Kobbs... "Krúsið" náði reyndar út á Hauganes þar sem
við urðum nánast bensínlaus og þurftum að skella okkur á Dalvík til
að taka bensín, svo við ákváðum bara að fara alla leið og kíktum á
Ólafsfjörð, Siglufjörð, Hofsós, Sauðárkrók og Varmahlíð... fyrst
þetta var nú svona "í leiðinni heim"! Fengum okkur pizzu og öööl á
Sigló, þar sem kippan kosta 3800 kr. og andlitið ætlaði að detta af
okkur, héldum að dýrara gæti þetta ekki orðið! eeen það reyndist
ekki rétt, því á Sauðárkróki kostar hún 5100 kr. takk fyrir kærlega
pent!
Eeen við komum öll sæl heim eftir u.þ.b. 9 klst. virkilega
skemmtilegt road trip, eitt það besta held ég
laaangt síðan ég
hef hlegið jafn mikið 
Og ég skrifaði undir leigusamning í gær fyrir næsta haust,
verðum 5 saman að leigja nýbyggt einbýlishús
þið getið skoðað
myndir hér
http://picasaweb.google.co.uk/dislexicaxel/Akureyri/house
Fórum síðan á Greifann til að halda uppá
Byrjum að leigja 1
júní svo það verður snilld að geta skellt sér í helgarferðir á
Akureyri í sumar í einbýlishúsið 
Eeeen 1 vika eftir síðan er það bara Egilsstaðir sem taka við.
Lokahóf í vinnunni í næstu viku og gistikvöld í félagsmiðstöðinni
minni um helgina. Er alveg að fýla mig í botn í þessari vinnu..
Rjómastríð um daginn og áskorendakvöld, þar sem ég m.a. borðaði 3
arkir af klósettpappír, 3 hár af síðhærðri manneskju, fullan lófa
af sápu og sleikti u.þ.b. 8 metra af gólfi.. niiiicee... vann samt
ekki!
Próflokadjamm hérna 18. maí
oog síðan útskriftarveisla fyrir
austan hjá Hjaltaljóni 
Held þetta sé að verða fínt, mútta og steinar og koma núna á
eftir svo maður verður að fara að taka til 