|
|
20.07.2007 04:28:30 / Agla
Já, elsku besti bróðir minn gerði sér glaðan dag á ferð sinni
heim frá Danmörku í seinustu viku og keypti handa uppáhalds systur
sinni og jafnframt þeirri einu, gullfallega Canon myndavél!
Viðurkenni ég það fúslega að hafa misþyrmt henni á seinasta balli
og tók ég u.þ.b. 250 myndir. Ég setti megnið af þeim hingað inn og
ég LOFA að standa mig betur næst! Þá er ég ekki að tala um að taka
fleiri myndir... heldur meira svona vanda mig við það. Semsagt:
ekki kippa ykkur upp við það að það vanti kannski helmingin af
andlitinu á fólkinu sem var á vegi mér með myndavélina...
Jess.. spurning um að taka punktana á þetta? eða jafnvel
bandstrikin?
-Fór á tónleika með Dúndurfréttum seinasta föstudag og er ekki
hægt að segja annað en þeir voru dúúúúndur góðir!
-Ákvað að ætla að giftast Pétri Jesú... Svalasti gaurinn í
bransanum!
-Ball með Buff á laugardaginn, grííííðarlegt fjör! Byrjuðum
nokkur heima hjá Pétri og Eyrúnu
-Sakn: Fanney sem var í brúðkaupsferð á Vopnafirði
-hún var samt ekki að gifta sig
-Allir heitu gaurarnir í Elysium sem voru e-ð að reyna að vera
töff í Noregi
-Sonja sem var fjarri góðu gamani.. og Sigurveig og Katrín sem
áttu að vera staddar á Höfn!
-Óvænt ánægja: viiiiti menn, birtust ekki bara Sigurveig og
Katrín, frá Höfn 
-Dansfélagi: Fiiiiddi Gutl 
-Myndatökumaðurinn: Klárlega ég! og kannski smá Heimir
Pétursson, sem gerði myndavélina mína upptæka undir lok balls því
hann sagðist eiga hana vegna þess að hann hafði verið með Steinari
í DK þegar hann keypti hana. Oooog Heimir hljóp í burtu og kom illa
sáttur til baka svona 5 mínútum seinna. Ég kveikti á henni og
ætlaði að skoða það sem Heimir hafði verið að mynda en sá einungis
fullt af gólfi og fótum og þá hafði þessi fáviti hlaupið inná
strákaklósett og ætlað að taka mynd af typpum fyrir mig! sá samt
því miður engin typpi, en ég tek viljan fram yfir verkið Takk!
ég er samt ekki alveg svona desperate...
-Dyravörður: Arnar Jón fyrir að segja við yfirdyravörðinn af við
hefðum fermst saman... var eeeengan veginn að nenna að hlaupa heim
að sækja skilríki!
-uuu.. Hressleiki: klárlega Silla
-Ekki hressleiki: Kolfinna, samt svo sæt jú okei, og pínu
hress 
-Heimsókn: Berglind Bjéé sem var stödd á Egs yfir helgina
Rosa gaman að fá þig í heimsókn 
-Rotnun: Hallveig á sunnudeginum... jesús minn!
Eeeen, fólk eitthvað að kvarta í færslunni hér á undan að þetta
væri of langt hjá mér svo ég held ég hafi þetta bara ekkert
lengra...
Annars er það bara LungA um helgina 
Aaaagla 
»
04.07.2007 01:06:13 / Agla
...Aðdáenda! aðdáanda?
Hver man ekki eftir því að hafa fengið jólakort í 6. bekk... jah
eða 10. bekk sem í stóð m.a. að einhver væri skotinn í manni eða
jafnvel elskaði mann? Fanney! þú mannst eftir því hehe Svo
breyttust tímarnir örlítið og fólk sendi bara einfalt og gott
sms... en nei, í dag fékk ég ástarbréf. Kvittun úr Esso sem var
undir rúðuþurrkunni á bílnum mínum, sem aftan á stóð: "Hæ elska. Ég
hef dáðst að þér í mörg ár og geri en. Hjarta mitt slær örar er ég
sé þig. Þú ert myndarleg á sál og ekki síður í líkamlega. Aðdáandi
xxx-xxxx (og nafn) xxxxxx"
Þetta stóð nákvæmlega svona, orðrétt og eins stafsett. Og eins
og sjá má er þessi maður ekki sá besti í því, þ.e.a.s. að orða
hlutina né stafsetja. Reyndar stóð nafn og símanúmer með, en ég er
ekki alveg svo vond sál að láta það fylgja með... enda sagði kauði
að ég væri með fallega sál Hélt fyrst og vonaði heitt og
innilega að þetta væri eitthvað grín, jafnvel vinir mannsins að
stríða honum greyinu! Fannst þetta mjög myndið og óskaði þess að
Steinar væri ekki lagður af stað til Danmerkur á Hróarskeldu svo ég
gæti farið heim og hlegið að þessu með honum. Eeeen þegar ég áttaði
mig á því hver þetta væri fannst mér þetta ekki alveg jafn fyndið.
40 ára gamall maður, sem á líklega ekkert svo marga svona fyndna
vini. Spurning hvað ég geri? Hringi í kauða eða láti hann eiga sig?
þetta er alltaf jafn skemmtilegur leikur og ég er greinilega búin
að finna hæfileika minn í lífi mínu, að sanka að mér fólk... hvað
get ég sagt? spes fólk.
Annars er þetta ótrúlegt, hvað sumarið líður hratt. Kominn 4.
fokking júlí. Gott sumar samt, svona enn sem komið er Margt
skemmtilegt búið að gerast og vonandi verður næsta helgi einn af
toppunum, en ég er í 4 daga fríi og ætla að leggja land undir fót
Eeeenginn eftir á Egilsstöðum þar sem allir eru að fara á
Hróarskeldu eða á Landsmót UMFÍ í Reykjavík, svo ég ætla að skella
mér til Akureyrar á fimmtudaginn, síðan til Grímseyjar og enda á
Akureyri á laugardeginum... gott plan
Fór á Jagúar tónleika á laugardaginn... DJÖFULL eru þeir góðir
ertað grínast...! aaah... og ég afgreiddi söngvarann daginn eftir
Ótrúlega góður stemmari í Valaskjálf eftir tónleikana og ég hef
aldrei séð jafn marga dansa uppi í dj-salnum síðan þetta opnaði!
tæær snilld... og klárlega miklu skemmtilegra þar heldur enn á
hestamannaballi 
Þar seinstu helgi skellti ég mér í afmæli til góðvinar míns hans
Ívars Ingimars... Hann hringdi í mig og bað mig um að koma til að
halda uppi fjörinu Nei, ég er að plata, Jói bauð mér með sem
"date" þar sem ívar bauð öllu Leiknisliðinu plús einn... á mann.
Vááá hvað þetta var gaman...! Frítt ööööl, rauðvín, hvítvín og
staup, og held ég að "gömlu" kellingarnar hafi verið verstar í því
Þær voru orðnar veeel hressar uppúr 10 Stebbi Hilmars, Regína
Ósk og Björn Jörundur sungu og Gummi Jóns, Guðmundur Pétursson og 2
gaurar úr Jagúar voru m.a. þeir sem spiluðu... gríííðarlegur
stemmari Todmobile ball kvöldið eftir og ekki var það verra

Seinustu helgi var það svo stór hljómsveitin Stjórnin sem
gjörsamlega átti dansgólfið í Valaskjálf. Og hún Silla stóð sig með
prýði sem aukahlutur Hittumst heima hjá mér nokkrar fyrir, og
svo bættust einhverjar pylsur í hópinn. þaaangað til að mamma og
pabbi ruddust innum dyrnar... Hress! þá ákváðu strákarnir að flýja
til þess að lenda ekki á trúnó með múttu... hún var... já eins og
ég segi HRESS eftir e-ja sukk samkomu uppí skógi eftir skógardaginn
mikla 
En ég set bráðum inn einhverjar myndir af sl.
helgum! Og ég spyr eins og allir: eru tónleikar á Borgarfirði
málið? ooog hvert skal halda um versló??
En annars væri öll hjálp þegin á ísl 403 og sögu 203... Hverjum
datt í hug að hafa sumarskóla og afhverju skráði ég mig í hann?
Þegar stórt er spurt er fátt um svör... en ég massa þetta
Kv. Aaaagla
»
19.06.2007 17:53:27 / Fanney
...Er að fara í próf á morgun úr öllu efni vetrarins og verð að
standast þá alla til að ná prófinu, skiptir engu máli þó maður fái
fullkomið í einum hluta ef maður fær undir 50% í einum af 4 þá þarf
maður að taka allt upp! Ég er nett á barmi taugaáfalls og finnst ég
ekki kunna neitt þrátt fyrir að hafa lesið þetta fokkings efni yfir
oooft... Heimkoma á föst=Gleði!!! Wish me luck babies!
»
07.06.2007 01:14:52 / Agla
ooog Ási alveg brjálaður.
Var á krúsinu á kaaaagganum áðan. Lagði fyrir utan Söluskálann,
í aðalastæðið alveg upp við dyrnar. Gekk illa svöl inn og keypti
mér bragðaref og tók púlsinn á liðinu sem inni stóð. Fór út eftir
að hafa lokið mér af, settist upp í kaaaggann, en nei allt kom
fyrir ekki, kagginn fór ekki í gang!!
Ekki gat Árni Páls reddað málunum, svo hann ákvað að hringja í
meistara Markús. En ekkert gátum við gert. Greyið var bara dáið.
Markús og strákarnir hentu mér heim að sækja bílinn hans bróðir
míns til þess að ég gæti sótt stelpurnar, en þegar ég kom aftur
niðureftir á Söluskálaplanið blasa við mér svona 3000 keilur og
málaraþjónusta Ása var mætt á svæðið, og viti menn! Ási alveg búinn
að missa vitið því hann hafði aldrei séð svona flottan bíl. Nei nú
er ég að ljúga, því bíllinn minn var mjög mikið fyrir honum, og
hann var sko kominn alla leið frá Reykjavík til þess að mála þessa
blessuðu línu á götuna. Svo... við, eins og fávitar, þurftum að ýta
bílnum yfir á stæðið hinum meginn, og þar stendur bara greyið.
Oooog ég þarf að labba í vinnuna, svekk!
En ég er allavega komin heim til Egilsstaða, og hér ætla ég að
vera í sumar. Ég er búin að vinna ógeðslega mikið síðan ég kom, og
varla búin að eiga mér líf. En sem betur fer verð ég í fríi aðra
hverja helgi og einn dag í viku í sumar, ooog ég er í fríi LungA og
Versló... víííí 
En eftir einungis 1 viku í vinnunni er ég komin með mjööög
miklar harðsperrur, mjööög marga marbletti, peiperkött og virkilega
mikið ógeð af FM. Elska samt Super. Alltaf sömu lögin, en í dag sá
ég að ég get ekki verið án þessarar útvarpsstöðvar þegar hún var
úti eftir að ljósleiðarinn hafði bilað. Auk þess gerði ég mér ekki
grein fyrir því hversu þægilegt er að geta sturtað niður svona
venjulega, því nei, það var ekki hægt þegar kalda vatnið vantaði í
fyrradag. Og brandarar á borð við "þetta kemur allt með kalda
vatninu" fengu sko að fljúga 
Er að vinna með Pólverja, sem lærði enskuna sína í Írlandi, en
talar samt eins og Borat. Það er mjög fyndið og bjargað því alveg
hvað hann er skemmtilegur, (andstæðan) því ég á alltaf virkilega
bágt með mig þegar hann reynir að tjá sig. Svo var líka lítill 15
ára íri að byrja í dag... hann talar eins og í bíómynd og það er
ótrúlega krúttlegt 
Sé fram á fínasta sumar, Valaskjálf búið að opna aftur og það
var ekkert smá gaman að fara á ball þar aftur eftir nokkra ára
pásu, og vitaskuld var það stórsveitin Á móti sól sem lék fyrir
dansi, og sjaaldan ef ekki aldrei hefur verið svona stappað þarna
inni. Löggan þurfti að gera sér glaðan dag og mæta á svæðið til
þess að geta hleypt einum og einum í einu inn um dyrnar.. því
Valskeilingar voru orðnir uppiskroppa með pláss. En, alltaf þessi
vissi stemmari sem klikkar ekki á Valaskjálf böllum.
En áður en ég kom til Egilsstaða þá fór ég í óvissuferð með
börnin mín í 8.-10. í Brekkuskóla. Snilldar óvissuferð í alla
staði. Byrjuðum á því að fara í bíó og skelltum okkur svo niður á
bryggju þar sem við áttum að fara á hraðbáta og kajaka. Það var
DRUUULLU kalt en samt ótrúlega gaman. Í lokin ákváðum ég og Gulli
(hinn umsjónarmaðurinn) að fara lengst út á sjó í kajökunum okkar,
og vera illa svöl. Þegar við vorum að snúa við, gerðist það.
Virkilega hægt, en ég fór á hliðina og flaut eins og einhver fáviti
á hliðinni því að björgunarvestið hélt mér uppi. Hélt að Gunnlaugur
myndi deyja því hann hló svo mikið. EEEn sá hlær best sem síðast
hlær, því akkúrat þá datt Gulli í sjóinn, kajakinn snérist við og
hann drukknaði. Nei djók, hann týndi bara gleraugunum sínum. samt
svekk. Fórum síðan uppá skotsvæði að skjóta á svona spjöld og síðan
áttum við að telja stiginn og sá myndi vinna sem myndi fá fæst
stig. nei djók, flest stig. Ég var í 3ja sæti með 44 stig af 50
mögulegum. Held ég ætti að leggja þetta fyrir mig og byrja að
stunda veiðar. Hef reyndar farið á rjúpnaveiðar, og nei ég hitti
ekki.
Síðan lá leiðin inná Hrísar í svona "eyði" hús þar sem við
gerðum okkur glatt kvöld og grilluðum og höfðum það niiice í gúddí
fíling, og viti menn, sá stóri og merki áfangi í lífi mínu átti sér
stað einmitt þá. Ég, Ragnhildur Agla smakkaði grillkjöt í fyrsta
skipti. þá 18 ára gömul. Er ekkert smá stolt af þessu afreki.
EEEr samt komin út í leiðinlegar sögur.. held að málið sé að
fara að sofa... 20 dagar í Fanneyju 
»
25.05.2007 01:32:12 / Agla
... Er meira pirrandi en að enda nakinn á stól sem er að
renna niður huges skíðabrekku?
http://youtube.com/watch?v=1h38kd8dYzg
Ekkert? nei ok, hélt ekki 
»
10.05.2007 18:01:33 / Agla
... Var það seinasta sem afi gamli sagði við mig í gær áður en
hann lokaði augun. Hann dó í morgun kallinn.
Ótrúlega skrýtið eitthvað. Ég hef alltaf haft alla hjá mér sem
mér þykir vænt um, þangað til í fyrra, þegar Pétur Kjerúlf dó,
síðan afi Pétur í haust og núna afi Hjalti.
Afi Hjalti var farinn að sjá voða illa og afi Pétur heyrði mjög
illa, þannig að núna geta þeir gengið hlið hlið og hjálpað hvorum
öðrum þarna uppi 
Já gaman að þessu...
júróvísjón tú næt.. Eiki kallinn tekur þetta 
»
09.05.2007 14:29:47 / Agla
Var að koma úr öðru prófinu mínu af tveimur, og
gekk bara glimrandi vel held ég! Næsta próf er ekki fyrr en á
þriðjudaginn í næstu viku svo þetta er allt saman voðalega
ljúft!
hvað rugl er samt þetta:
1 eining - 6.200 kr.
2 einingar - 12. 400 kr.
3 einingar - 18.600 kr.
4 einingar - 24.800 kr.
5 einingar - 31.000 kr.
6 einingar - 37.200 kr.
7 einingar - 43100 kr.
8 einingar - 49.000 kr.
9 einingar - 54.900 kr.
10 einingar - 60.800 kr.
11 einingar - 66.700 kr.
12 einingar - 72.600 kr.
13 einingar - 78.300 kr.
14 einingar - 84.000 kr.
15 einingar - 89.700 kr.
16 einingar - 95.400 kr.
17 einingar - 101.100 kr.
18 einingar - 106.800 kr.
Þetta er verðskráin yfir sumaráfanga í FB... þetta er reyndar
ódýrara í FÁ, en ég bara varð að koma þessu frá mér, svo hneyksluð
er ég! semsagt ef ég ætla að taka 9 einingar í sumar til að létta
mér aðeins næsta ár til að útskrifast kostar það ekki nema 55 þús
kjeeell... ekki málið vinur
Ég og Kolla vorum á fullu að læra undir próf á mánudaginn og
ákváðum aaðeins að lyfta okkur upp frá bókunum og kíktum á krúsið
með Lalls og Kobbs... "Krúsið" náði reyndar út á Hauganes þar sem
við urðum nánast bensínlaus og þurftum að skella okkur á Dalvík til
að taka bensín, svo við ákváðum bara að fara alla leið og kíktum á
Ólafsfjörð, Siglufjörð, Hofsós, Sauðárkrók og Varmahlíð... fyrst
þetta var nú svona "í leiðinni heim"! Fengum okkur pizzu og öööl á
Sigló, þar sem kippan kosta 3800 kr. og andlitið ætlaði að detta af
okkur, héldum að dýrara gæti þetta ekki orðið! eeen það reyndist
ekki rétt, því á Sauðárkróki kostar hún 5100 kr. takk fyrir kærlega
pent!
Eeen við komum öll sæl heim eftir u.þ.b. 9 klst. virkilega
skemmtilegt road trip, eitt það besta held ég laaangt síðan ég
hef hlegið jafn mikið 
Og ég skrifaði undir leigusamning í gær fyrir næsta haust,
verðum 5 saman að leigja nýbyggt einbýlishús þið getið skoðað
myndir hér
http://picasaweb.google.co.uk/dislexicaxel/Akureyri/house
Fórum síðan á Greifann til að halda uppá Byrjum að leigja 1
júní svo það verður snilld að geta skellt sér í helgarferðir á
Akureyri í sumar í einbýlishúsið 
Eeeen 1 vika eftir síðan er það bara Egilsstaðir sem taka við.
Lokahóf í vinnunni í næstu viku og gistikvöld í félagsmiðstöðinni
minni um helgina. Er alveg að fýla mig í botn í þessari vinnu..
Rjómastríð um daginn og áskorendakvöld, þar sem ég m.a. borðaði 3
arkir af klósettpappír, 3 hár af síðhærðri manneskju, fullan lófa
af sápu og sleikti u.þ.b. 8 metra af gólfi.. niiiicee... vann samt
ekki!
Próflokadjamm hérna 18. maí oog síðan útskriftarveisla fyrir
austan hjá Hjaltaljóni 
Held þetta sé að verða fínt, mútta og steinar og koma núna á
eftir svo maður verður að fara að taka til 
»
24.04.2007 23:53:26 / Agla
HUGES kúlu á hausinn eftir eitt það asnalegasta sem ég hef gert!
Ég og Kolla vorum semsagt ýkt duglegar og fórum út á þrífa bílinn
minn í góða veðrinu í dag, ég var að taka til í skottinu og ætlaði
að loka þvi, beygi mig niður í leiðinni og skelli á hausinn á mér!
Grét bæði úr hlátri og sársauka og hefði gefið mikið fyrir það að
hafa haft upptökuvél!
-En annars er mjög margt búið að ske síðan ég bloggaði seinast,
fór á ungfrú Norðurland, missti af ungfrú Austurland... Sorry
girls... En aðal ástæðan fyrir því að ég var hérna á Akureyri í
byrjun páskafrísins var vinna... ætlaði að vera heví dugleg en hún
ælupest vinkona mín kom í heimsókn, og þar af leiðandi fór ég veik
heim í páskafrí 
-Fríið var samt ágætt, vann reyndar af mér rassinn, borðaði og
svaf - ljúft 
-Var ekki í neinum djammgír þessa páskana en kíkti nú samt með
stelpunum mínum á DJ-battle á Seyðisfirði, rosa stuð en alltaf eru
Lallýar partý vinsælust 
Júú.. og svo er Hetjan alltaf heit 
-Söngkeppni framhaldskólanna var svo haldin með pompi og prakt
hérna fyrir 2 vikum, og Katrín kom til mín á fimmtudeginum og við
tókum tjúttið á þetta Vona heitt og innilega að nágrannar mínir
fyrirgefi okkur Ragga þetta með hjólið... Og Katrínu tókst að
gleyma hálfum heiminum.. ekki henni líkt... niii...
-Pétur og stelpurnar mínar stóðu sig með prýði fyrir hönd ME
(flottir skór Eyrún ), eeen Eyþór Ingi bar sigur úr bítum fyrir
hönd VMA, en ekki hvað Búið að vera rosa stemmari í skólanum
eftir keppnina, hann m.a. fenginn uppá svið og honum afhentur
blómvöndur og auðvitað tók hann lagið, auk þess sem búið er að
spila myndbandið í gríð og erg!
-Síðan skellti ég mér í staffapartý á laugardaginn.. heví næs
krakkar allt saman og ótrúlega fínt kvöld 
Svo er þetta bara allt að verða búið... 2 vikur eftir af
skólanum og 2 próf, því ég er í öllu öðru próflausu! og já, búin að
ná jóga víí...
Og já, ég fékk mér myspace eins og allir hinir...
Ooog megið endilega kvitta svo ég haldi áfram að nenna þessu...

»
04.04.2007 22:16:54 / Fanney
Einu sinni vorum ég og Silla að leika okkur
heima hjá henni að spila á hljómborð og syngja. Mig minnir að
við höfum verið 6 og 7 ára og þetta var á sólskinbjörtum
sumardegi. Við ákváðum að stofna hljómsveit sem myndi heita
Grettir. Gerðum logo sem áttu síðan að verða haus á auglýsingu
fyrir tónleika sem við ætluðum að halda í garðinum hjá Sillu.
Silla gerði tvær myndir og ég eina og svo átti Óli Rúnar að dæma
hvor hefði gert flottara logo... Óli dæmdi mitt logo flottast og
Silla var ekki sátt og ruglaði þeim aftur og sýndi honum og bað
hann að dæma aftur! Óli grenjaði úr hlátri í smá stund yfir að
Silla héldi að hann myndi ekki dæma sama logoið þótt myndinarnar
væru í annari röð og dæmdi mínu aftur sigur! *RúST SILLA*
Við fórum síðan og töluðum við Auði Freydísi
og báðum hana að koma með okkur niður á Hrepp og láta mömmu hennar
ljósrita auglýsingarnar, einnig vildum við fá hljómborðið hennar í
láni því hljómborðið hennar Sillu var svo stórt að það gat
eiginlega ekki verið útí garði. Þá vildi Auður Freydís fá að vera
með og við réðum hana sem sjoppukonu og tamborínu spilara. Við
fórum síðan niður í heildsölu til að reyna að sníkja útrunnið nammi
til að selja á tónleikunum og Baldri Grétarssyni(að mig minnir)
fannst við helvíti sniðugar og gaf okkur þristapoka og e-ð
smotterí! Svo fórum við í Olís og keyptum smá blandípoka líka til
að selja.. Fórum síðan upp á Hrepp og fengum að ljósrita. Svo fórum
við að bera út auglýsingarnar fyrir tónleikana sem áttu að vera
seinna um daginn og við byrjuðum á götunum í kringum Sillu og svo
voru auglýsingarnar búnar þannig að við bönkuðum upp á í nokkrum
húsum og sögðum þeim frá tónleikunum! Og að sjálfsögðu sögðum við
öllum sem við hittum frá tónleikunum.
Við föttuðum svo að við vorum alveg að falla á
tíma og hlupum heim til Sillu og stilltum upp sjoppunni og ákváðum
nokkur lög sem áttu að vera á tónleikunum! Silla átti að spila á
hljómborð, ég að syngja og Auður Freydís að sjá um sjoppuna og
spila á tamborínuna! Það mættu um 20 krakkar(bara þeir sem við
höfðum hitt) og við urðum nú fyrir smá vonbrigðum yfir hve fáir
hefðu séð auglýsinguna, sem var borin út í húsin 2 tímum áður! En
tónleikarnir byrjuðu og tónleika gestirinir kvörtuðu yfir að það
heyrðist ekkert í hljómborðinu þannig að Silla tók við af Auði á
tamborínunni og þá gat Auður einbeitt sér að sjoppunni! Það var nú
eiginlega enginn með pening þannig að við höfðum hlé og létum
krakkana fara heim að sækja pening til að kaupa í sjoppunni. Í
hléinu byrjaði að rigna og allir sterku molarnir urðu blautir og
klístraðir, en þristarnir seldust sko grimmt. Þrátt fyrir rigningu
héldu tónleikarnir áfram og meðal annars voru lögin, Hafið bláa
hafið, Ó María mig langar heim og “Það er rigning og myrkur og
meinlegir skuggar” flutt við mikinn fögnuð viðstaddra við vorum
meira að segja klappaðar upp að tónleikunum loknum! Við komum út í
gróða í sjoppunni og skiptum ágoðanum á milli okkar. Það var aftur
komin sól og ég hljóp heim niður göngustíginn hjá rafmagnskúrnum og
það var eins og ég svifi ég hljóp svo hratt! Klinkið sem ég hafði
þénað sýndi ég mömmu stolt áður en ég borðaði kvöldmatinn. Eftir
kvöldmat var hringt í mig og verið að safna í leiki upp á
leikskóla! Ég og Silla fengum mikið hrós fyrir tónleikana og svo
fóru allir í eina krónu.. Dagana eftir var fólk að koma til okkar á
götunum þar sem það var leitt yfir að hafa ekki getað komið á
tónleikana. Við ákváðum að halda aðra bráðlega...
.....Þeir tónleikar hafa enn ekki verið haldnir!
Hver vill comeback Grettis?..
Allaveganna ég sko....
»
04.04.2007 09:17:40 / Fanney
Ég veit ekkert hverjir eru ad skoda tessa sídu tannig ad ég tók
tetta bara út hehe... Samt gódar minningar sko
»
26.03.2007 22:39:09 / Agla
uuuu... hehe vúúúúpss..
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1261092
Hvaaaar er ökuskírteinið mitt?
En í morgun sá ég sjón sem ég sé ekki oft, eða hef bara aldrei
séð og það lá við að ég myndi klippa dálk úr sálfræði 203 bókinni
minni í morgun og ramma hann inn.
Þar var verið að tala um rökhugsun barna og þörfina fyrir hana.
Dæmið var svona:
Anna: Agla er eitthvað merkileg því afi
hennar var eitthvað merkilegur.
Mamma: Það hefur ekkert með Öglu að gera
þó að afi hennar sé eitthvað merkilegur.
Anna: jú víst, og svo er pabbi hennar líka merkilegur.
Mamma: En það breytir heldur engu fyrir hana, hún er bara hún
sjálf.
Anna: Já, en skilurðu ekki, alveg eins og ég er pínulítið dönsk
af því að afi minn var danskur og pabbi minn líka. Þú skilur ekki
neitt! (er orðin óþolinmóð).
Þetta dæmi klárlega samið um mig, enda er ég mjög merkileg.
Mamma hennar Önnu er bara heimsk
Ekki?
»
19.03.2007 09:42:30 / Fanney
.... HVERJIR ÆTLA AÐ KOMA Á HRÓARSKELDU MEÐ MÉR Í SUMAR??????
WHOOOOOHAAAAA  Það verður best.. rúst
»
15.03.2007 00:39:58 / Agla
Erum við að tala um vesen eða?
Keyrðum ég og Kolla heim til Snorra á föstudaginn, ég viðurkenni
það, lagði grííííðarlega illa eða öllu heldur fyrir 2 bíla (sem eru
reyndar ekki í notkun) og skelltum okkur í part-ey! Vorum svo
sóttar og skelltum okkur á VMA-árhátíðarball áhyggjulausar (ég með
lykilinn í vasanum) og ætluðum að sækja bílinn daginn eftir! (ekki
minn bíll samt).
OOOOOg viti menn, ég, Ragnhildur Agla gat náttúrulega ekki annað
gert en týnt bíllyklinum! búin að leita út um gjörsamlega allt,
labba alla leiðina sem ég fór, hringja á alla staði þar sem ég var
og meira að segja rúnta upp í sveit í leit að aukalyklinum en allt
kom fyrir ekki. Engir lyklar eru sko ekki að finnast.
Á laugardaginn, kíkti ég líka á djammið. Að þessu sinni reyndar
í froðupartý á Capone, þar sem það var klárlega e-ð í froðunni...
allavega fór fólk að borða mann og annan. Maður var blautur og
kaldur, samt fínt. Fyrir utan það að e-r datt á mig og ég lenti e-ð
asnalega og er að drepast í mjöðminni. og hvað gerði ég líka? jú,
týndi kortinu mínu. Pirrandi? já...
Ætlaði ýkt mikið að drífa mig í vinnuna á sunnudagsmorguninn...
dreif mig á fætur, staulaðist út í bíl oooog viti menn, hann fór
EKKI í gang! enn meira pirrandi? já!
Fórum nokkur í fótbolta í gær, kl. reyndar orðin 10 þegar við
fórum og ljósin fljótlega slökkt.. Héldum samt áfram í
myrkrarfótbolta, þetta orðið heldur hættulegt enda sáum við ekki
rass, en mín ætlaði að taka eina hjólhesta spyrnu í viðbót og
sparkaði í slánna og tognaði.
Okei kannski smá að ýkja, datt reyndar bara... en ég endaði
allavega á hækjum, það pirrandi? jááá... frétti það sko!
Ætluðum samt að panta nýja lykla í bílinn, og ég hringdi í Reyni
Svavar, son eiganda Toyota umboðsins á Egilsstöðum til að tékka á
stöðu mála, og kvikindið laug því í mig að það tæki minnst eina og
hálfa viku að panta svona lykil, og kostaði 5000 - 10000 þús kall.
Ég ætlaði ekki að verða eldri, enda enn svekktari, en ljósi
punkturinn í þessu er klárlega sá að þetta tekur einungins 1 dag og
kostar bara 1010 kr.
Bíllinn minn samt komin í lag.. er samt ekki að treysta þessu,
fer ekki í gang nema honum hentar og ég get ekki treyst því að
hljóðkúturinn haldist undir Tek samt sjensinn, legg af stað í
road-trip til borgar óttans á föstudaginn, klárlega til að styða ME
í gettu betur og skella sér á austfirðingarball! hvet alla til að
mæta og vonast til að sjá sem flesta... vííí 
»
10.03.2007 01:46:06 / Fanney
Ég var að reyna að blogga með gúmmíhanska.... Það gekk ekki svo
gott:/ SKooo.. ég var ða koma heim og var í fínum kjól og fór að
elsda núðlur og missti diskinn og ég hélt að hann hefðiEKKI brotnað
og tók hann upp með gúmmíhönslkunm því hann var svo heitur og þá
tók ég bara upp hliðaranar hahahahahaha.. og þá velltu núðlurnar
útum allt og þá vildi ég að agla væri hérna til að hljæa með mér
hahaha stefáni fannst ég ekkert fyndin  Við vorum á galaballi og
það var töff hringdi í sillu áðan til að segja henni að ég heyrði
uppáhaldslagið okkar, vi går frem og tilbage! Svo klæddi ég mig úr
öllum f-tunum og fór að dansa húllahúlla uppá borði, eins og þið
öll vitið ótrúlegt hvar er einvher til að gera samloku í
samlokugrillinu með mér.. hmm SILLA???? svikari Pétur Ármanns vann
Barkann með ástarljóði til mín... nakinn... þetta er maður að
heyra!!!! róleg á aðvera alltaf nakin þarna úff er þetta blogg
búið? já? mér er kalt bið að heilsa Guðlaug Sindra, agla
hahahahahahahahhahahahahahhahahahahahhahahahahahahahhahahahahahhaha,
afhverju byrjaru ekki arba með guðlaug sindra? það væri nett blehh
»
04.03.2007 04:10:33 / Agla
Já vorum rétt í þessu að koma af sveeeeiiittu djammi með Dj.
Palla ég og Herdís, og þá meina ég S-V-E-I-T-T-U Djaaaammi!! hann
er búin að koma svona 40 sinnum til Akureyrar í vetur og alltaf er
þetta jafn fokking sveiitt!!
Vorum stoppaðar á leiðinni á Capone af fullum bíl af fólki og
spurðar þessar ágætu spurningar "Ef að tveir strákar sem litu alveg
eins út og Brad Pitt myndu fara og kaupa sér bragðarref, annar
stóran en hinn lítin, hvorn mynduð þið velja??" Herdís: "Lítin..."
Agla: "Stóran..."
Strákurinn: " Stóran? þá hefur hann minni tíma fyrir þig... já
þú ert hóra!!!!"...
jááá flooooottt... góð ályktun, og góð leið til að sjá svona
hluti út!
Eeen nú Herdís búin að borða svona 15 brauðstangir, búin að
setja upp græna pallíettu grímu og syngja "moving like a tiger"...
nakin... já semsagt heeevíí nett gella eða?
Ég að veita henni athygli þar sem *** var eeekki að heilsa inná
tikk takk... slappur tappi eða??
Jáá.. eða hún ekki að heilsa, fer eftir því hvernig við lítum á
þetta 
hann var samt einusinni flottur sko.. ekki lengur
EN við hedda Magga þurfum ká-ell-árlega að skella okkur í
borgina.. held að það sé á hreinu! næsta helgi egs á barkann og
þarnæsta til Rvk á Gettu betur og Austfirðingaball?.. nett eða? já
held það sko...
Sofa eða?
já vinna á morgun eða?
En hversu flókið er líf mitt? jú, ég á fokking 3 myspace og
EKKERT virkar! Olli gerði eitt og notaði mail-ið mitt í það, og það
var asnalegt þannig að hann bjó til nýtt með nafninu mínu og e-ju
allt öðru mail-i svo ég kemst ekki inná það og síðan bjó ég til
annað sem ég get heldur ekki notað svo ég held þetta sé tákn!!
þannig að ef e-r kann á myspace, þ.e.a.s. eyða út eða komast inná
það, þá er sá hinum sama guðvelkomið að hafa saaamband...
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|